Brúnavegur 9 A-íbúð
G íbúð er að flatarmáli 50 fm með hluta í sameign, alls 54 fm.
Íbúðin er stúdíóíbúð með eldhúsinnréttingu, fataskáp og stofu/svefnaðstöðu í einu rými og sér baðherbergi. Úr stofunni er gengið út á flísalagðar svalir með gustlokun.
6 fm geymsla er í kjallara.
Íbúðir á efstu hæð eru með meiri lofthæð. Munur er á leiguverði á íbúðum á 1.-3. hæð og íbúðum á 4. hæð.
Það eru fjórar A íbúðir á Brúnavegi.