Naustavör
585 9300
@ – naustavor@naustavor.is
Þjónustusími opinn allan sólarhringinn allan ársins hring
Þjónustustjóri: Aldís Einarsdóttir
Umsjón fasteigna: Gunnar V. Jónsson
Skrifstofa: Kristín Pétursdóttir
Matarþjónusta
Á Hrafnistu í Reykjavík er rekið kaffihúsið Skálafell. Þar er hlýlegt bókakaffisumhvefi í sambland við hefðbundinn matsal sem þjónar bæði heimilisfólki, starfsfólki og gestum Hrafnistu.
Skálafell, er opið til kl 19:00 á kvöldin. Þar er hægt að kaupa hádegismat, kaffidrykki og meðlæti eins og pönnukökur með rjóma og súkkulaðiköku. Gefst þar tækifæri til að sækja kaffihús og bjóða vinum og ættingjum með sér. Líkt og á flestum kaffihúsum landsins er mögulegt að fá sér þar léttvín eða bjór.
Verkstjóri í Skálafelli og yfirmaður kaffihússins er Auður Björk Bragadóttir.
Sjúkraþjálfun
Sjúkraþjálfun stendur fólki til boða gegn tilvísun frá lækni. Þjónustan er veitt samkvæmt gildandi samningi við Sjúkratryggingar Íslands og er greitt fyrir samkvæmt gjaldskrá.
Deildarstjóri sjúkraþjálfunar: Gígja Þórðardóttir
Aðstoðardeildarstjóri: Rósa Mjöll Ragnarsdóttir
Hárgreiðslustofa
Hárgreiðslustofa er staðsett í anddyri Hrafnistu og eru tímapantanir í síma 531 4016
Greitt er samkvæmt verðskrá.
Hárgreiðslumeistari: Unnur Óladóttir
Fótaaðgerðastofa
Fótaaðgerðastofa er staðsett á fyrstu hæð í D-álmu.
Opið alla virka daga kl 9:00 – 15:00
Greitt er samkvæmt verðskrá.
Fótaaðgerarfræðingur: Málmfríður Einarsdóttir
Heimaþjónusta
Félagsleg heimaþjónusta er veitt frá Velferðarsviði Reykjavíkurborgar
- Aðstoð við heimilisþrif
- Aðstoð við innkaup
- Félagslegur stuðningur og hvatning
- Heimsending á matarbökkum
Heimasíða þjónustu við eldri borgara hjá Velferðarsviði Reykjavíkurborgar
Heimahjúkrun
Heimahjúkrun og önnur hjúkrunarþjónusta er veitt frá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins í Glæsibæ
Heimasíða Heilsugæslunnar í Glæsibæ