Brúnavegur 9
Húsið stendur á fallegum stað og víða er fagurt útsýni yfir borgina og sjóinn
Lífsgæðakjarni
Lífsgæðakjarni nær yfir bæði húsnæði og þjónustu þar sem fólki gefst kostur á að auka lífsgæði sín og njóta þess að vera til. Með virku samstarfi þeirra sem þar starfa og þangað sækja verður til kjarni sem leiðir af sér góðar stundir með góðu fólki.
Með skipulagðri dagskrá og fjölbreyttri þjónustu verður til lífsgæðakjarni á Brúnavegi sem stuðlar að auknu öryggi, meiri vellíðan og bættum lífsgæðum eldra fólks.
Tengigangur er á milli íbúðanna á Brúnavegi 9 og Hrafnistu í Laugarási þar sem fjölbreytt þjónusta er í boði.
Innlit á Brúnavegi
Þjónusta í nærumhverfi – stutt í lífsins gæði
• Göngustígar og púttvöllur
• Stutt í Laugardal og
Laugardalslaug
• Fjölbreytt félagsstarf
• Heilsuefling
• Handavinna
Á Hrafnistu í Laugarási er hægt að sækja eftirfarandi þjónustu
• Matsalur, kaffihús og bar
• Tækjasalur
• Félagsstarf
• Verslun
• Hárgreiðslustofa
• Fótaaðgerðastofa
• Fjölbreytt félagsstarf
• Sjúkraþjálfun
Flokkun íbúða
Á Brúnavegi 9 er fjögurra hæða lyftuhús með 24 rúmgóðum og björtum íbúðum.
Íbúðirnar eru af sjö mismunandi gerðum. Fjórar eru stúdíóíbúðir og 20 eru tveggja herbergja og skiptast í eftirfarandi flokka.
Hér fyrir neðan eru nánari upplýsingar um íbúðirnar. Yfirlit yfir lausar íbúðir má finna hér.
Flokkur 1
< 70 m2
(íbúðir A, B, C, D, E)
Verðbil: 240.000 – 330.000 kr.*
Flokkur 2
71-85 m2
(íbúðir F, G)
Verðbil: 370.000 – 410.000 kr.
Smelltu hér til að skoða grunnmynd Brúnavegi 9
Nánari upplýsingar á skrifstofu Naustavarar í síma 585-9300 eða naustavor@naustavor.is
*Verð miðað við 1. september 2023. Leiguverð breytist í samræmi við neysluvísitölu til verðtryggingar og er sett fram með fyrirvara um breytingar.