Hraunvangur 1 – 3

Hraunvangur stendur við hraunjaðarinn og er fallegt útsýni í allar áttir.
Margar fallegar gönguleiðir og góðir göngustígar eru í nágrenninu og
stutt í miðbæ Hafnarfjarðar, Víðistaðatún og Hellisgerði.
Hægt er að leigja bílastæði í bílakjallara.

Lífsgæðakjarni

Lífsgæðakjarni nær yfir bæði húsnæði og þjónustu þar sem fólki gefst kostur á að auka lífsgæði sín og njóta þess að vera til. Með virku samstarfi þeirra sem þar starfa og þangað sækja verður til kjarni sem leiðir af sér góðar stundir með góðu fólki.

Með skipulagðri dagskrá og fjölbreyttri þjónustu verður til lífsgæðakjarni í Hraunvangi sem stuðlar að auknu öryggi, meiri vellíðan og bættum lífsgæðum eldra fólks.

Hægt er að komast á milli leiguíbúðanna og Hrafnistu á Hraunvangi í gengnum bílakjallara. Mjög fjölbreytt þjónusta og félagsstarf er í boði á Hrafnistu.

Innlit í Hraunvang

Hraunvangur-21036
Hraunvangur-21065
Hrafn3100708
Hraunvangur.-210068
Hraunvangur.-210080
Hraunvangur.-210193
Hrafn3110694
Hrafn3100725
Hraunvangur.-210039
Hrafn3110700
Hrafn3100734
Hraunvangur.-210252
Hraunvangur.-210137
Hraunvangur.-210126
Púttmót-Hrafnistu-Hafn-18167
Grill 2
Hraunvangur.-210012
Hraunvangur-21036 Hraunvangur-21065 Hrafn3100708 Hraunvangur.-210068 Hraunvangur.-210080 Hraunvangur.-210193 Hrafn3110694 Hrafn3100725 Hraunvangur.-210039 Hrafn3110700 Hrafn3100734 Hraunvangur.-210252 Hraunvangur.-210137 Hraunvangur.-210126 Púttmót-Hrafnistu-Hafn-18167 Grill 2 Hraunvangur.-210012

Þjónusta í nærumhverfi – stutt í lífsins gæði

  • Göngustígar og púttvöllur
  • Stutt í Sundhöll Hafnarfjarðar, Víðistaðatún og miðbæ
  • Fjölbreytt félagsstarf
  • Heilsuefling
  • Handavinna

Á Hrafnistu í Hraunvangi er hægt að sækja eftirfarandi þjónustu

  • Matsalur, kaffihús og bar
  • Tækjasalur
  • Sundlaug
  • Félagsstarf
  • Verslun
  • Hárgreiðslustofa
  • Fótaaðgerðastofa
  • Sjúkraþjálfun

Flokkun íbúða

Á Hraunvangi 1-3 eru tvö þriggja hæða fjölbýlishús með 64 leiguíbúðum, 32 íbúðir í hvoru húsi.
Íbúðirnar eru af fjórum mismunandi gerðum og ýmist tveggja eða þriggja herbergja.

Hér fyrir neðan eru nánari upplýsingar um íbúðirnar. Yfirlit yfir lausar íbúðir má finna hér.

Flokkur 1

< 70 m2
(íbúðir A)
Verðbil: 290.000 kr. *

Flokkur 2

71-85 m2
(íbúðir B,C )
Verðbil: 320.000 – 330.000 kr.*

Flokkur 3

> 85 m2
(íbúðir D,E,F)
Verðbil: 370.000 – 380.000 kr.*

Smelltu hér til að skoða grunnmynd af Hraunvangi 1-3
Nánari upplýsingar á skrifstofu Naustavarar í síma 585-9300 eða naustavor@naustavor.is

*Verð miðað við 1. september 2023. Leiguverð breytist í samræmi við neysluvísitölu til verðtryggingar og er sett fram með fyrirvara um breytingar.

Grunnmyndir af Hraunvangi 1-3

1. hæð

2. hæð

3. hæð

Umsókn um íbúð