Sléttuvegur 27
Framúrskarandi íbúðir á fallegum stað í Fossvogi. Íbúðirnar eru
hluti af lífsgæðakjarnunum Sléttunni, þar er fjölbreytt þjónusta
í boði. Innangengt er í þjónustumiðstöðina Sléttuna.
Lífsgæðakjarni
Lífsgæðakjarni nær yfir bæði húsnæði og þjónustu þar sem fólki gefst kostur á að auka lífsgæði sín og njóta þess að vera til. Með virku samstarfi þeirra sem þar starfa og þangað sækja verður til kjarni sem leiðir af sér góðar stundir með góðu fólki.
Með skipulagðri dagskrá og fjölbreyttri þjónustu verður til lífsgæðakjarni á Sléttuvegi sem stuðlar að auknu öryggi, meiri vellíðan og bættum lífsgæðum eldra fólks.
Á Sléttuvegi er þjónustumiðstöðin Sléttan í sömu byggingu og íbúðir Naustavarar. Þar má finna ýmsa þjónustu og félagsstarf.
Innlit á Sléttuna
Þjónusta í nærumhverfi – stutt í lífsins gæði
• Nálægð við Fossvoginn
• Nauthólsvík í göngufæri
• Göngustígar og púttvöllur
• Samkomusalur
• Fjölbreytt félagsstarf
Á Sléttunni er starfrækt þjónustumiðstöð, með opnu félags- og tómstundastarfi, sem er ein af hverfismiðstöðvum Reykjavíkurborgar. Þjónustumiðstöðin er opin alla daga vikunnar. Þar má finna eftirfarandi þjónustu:
• Matsal
• Kaffihús
• Félagsstarf
• Hárgreiðslustofu
• Fótaaðgerðastofu
• Dagþjálfun
Kynningarmyndband af Sléttunni
Þrír flokkar af leiguíbúðum
38 íbúðir eru í flokki 1, 15 íbúðir í flokki 2 og 7 íbúðir í flokki 3.
Hægt er að hafa samband við skrifstofu Naustavarar í síma 585-9300 og fá nánari upplýsingar um allt sem tengist leiguíbúðunum að Sléttuvegi 27.
Hér fyrir neðan eru nánari upplýsingar um íbúðirnar. Yfirlit yfir lausar íbúðir má finna hér.
Flokkur 1
< 70 m2
2 herbergja
Verðbil: 230.000 – 320.000 kr.*
Flokkur 2
71-85 m2
2-3 herbergja
Verðbil: 320.000 – 390.000 kr.*
Flokkur 3
> 85 m2
3 herbergja
Verðbil: 370.000 – 430.000 kr.*
Smelltu hér til að skoða grunnmynd af Sléttuvegi 27
Nánari upplýsingar á skrifstofu Naustavarar í síma 585-9300 eða naustavor@naustavor.is
*Verð miðað við 1. september 2023. Leiguverð breytist í samræmi við neysluvísitölu til verðtryggingar og er sett fram með fyrirvara um breytingar.